Félagsmenn höfnuðu einkahyggjunni og ákveðinni veruleikafyrringu

Mjög gleðilegt að félagsmenn VR hafi ákveðið að nýjir tímar hefjist nú í félaginu.

Klár krafa er nú á vönduð, upplýst og lýðræðisleg vinnubrögð af hálfu formanns félagsins okkar og skal hann gæta hófs og passa að sitja ekki "beggja megin borðsins" þegar hagsmunir er tengjast félaginu eru í vinnslu ... ásamt að passa upp á jafnræðisregluna gagnvart öllum félagsmönnum.

Ég skora á Kristinn að vinna að því að leggja niður svokallaða "Uppstillingarnefnd" (forvals- og uppeldisstöð sitjandi stjórnarmanna þóknanlega þeim)  varðandi móttöku nýs fólks sem vill koma til starfa í félaginu samkvæmt auglýsingu. Uppstillingarleiðin er ólýðræðisleg og takmarkar nýja strauma og hugmyndir inn í félagið.

Auk þess mæli ég með því að Lúðvík (sem lenti í 2 sæti í formannskjörinu) komi með einhverjum hætti að endurskipulagningu félagsins og Kristinn hafi frumkvæði að einingu á nýjum tímum.

 Til hamingju VR!


mbl.is Kristinn kosinn formaður VR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband