5.1.2010 | 11:41
Sigur lýðræðisins!
Takk fyrir þann nauðsynlega persónustyrk Ólafur sem sjálfstætt hlutverk forsetaembættisins að lögum klárlega krefst.
Fyrir þinn tilstyrk vex nú velsæmi, virðing og mikilvægi þessa lýðræðishornsteins sem embætti forseta Íslands er.
Þú ert umheiminum til fyrirmyndar með því að deila nú með honum fréttinni, að á Íslandi ræður íslenska þjóðin á endanum skuldbindingum er hana varða um langan aldur og það er hún og hún ein, sem verður að leggja blessun sína á endanlega staðfestingu samninga sem gerðir hafa verið fyrir hennar hönd af fulltrúum hennar.
Þetta er það réttarfarslega stjórnskipulag sem á Íslandi gildir að lögum og stjórnarskráin rammar inn.
Innilegustu þakkir Ólafur Ragnar Grímsson.
Til hamingju Ísland!
![]() |
Staðfestir ekki Icesave-lög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Til hamingju Ísland.
Offari, 5.1.2010 kl. 12:07
Þjóðin veit ekkert hvað á að kjósa um.Nu er first allt komið í rugl.Þjóðin getur ekki tekið afstöðu um þennana samning
Árni Björn Guðjónsson, 5.1.2010 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.