Evrópa hornsteinn mannréttinda!

Ánægjulegt að breskur dómari vinni í takt við ofangreint og sendi skilaboð til umheimsins þar um.

Að sama skapi er dapurlegt, að einstaklingur telji sig þurfa að efast um heiðarleika dómstóls einna af löndum Norðurlanda.

Það er mjög svo umhugsunarvert fyrir öll Norðurlönd og varðar sameiginlega ímynd þeirra og náið samstarf.

Allir vita að Svíar eiga gífurlegra hagsmuna að gæta hvað varðar vopnaframleiðslu í heiminum... þó þeir gefi sig út fyrir algert hlutleysi gagnvart hernaði eða bandalögum á því sviði.

Almennt talað er ekkert skrítið að fólk óttist hluti sem ekki eru fullkomlega gegnsæir eða öllum almenningi auðskiljanlegir ... sérstaklega þegar samhengi hluta kann að mynda spennistöðu í siðferðislegum skilningi.

Ég treysti Svíum til þess að standa heiðarlega að málum er varða mannréttindi "einstaklings í hópnum" en þess kann að vera stutt að bíða að þeim gefist tilefni til þess.


mbl.is Assange látinn laus gegn tryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Missir ... þvinguð þjóð!

Dapurleg og beinlínis mjög slæm frétt að Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra sé látin hætta ... þjóðin þvinguð til þess að baki örugglega einni af allra hæfustu, faglegustu og líklega einni af réttsýnustu manneskju sem orð fara af í því ráðuneyti a.m.k. fyrr og ... mun þurfa mikið til að það gildi ekki einnig um síðar

Hreint út sagt ótrúleg ráðstöfun!

Hvenær ætlar kjánaskapnum og klíkupotinu í pólitíkinni að ljúka í þessu litla landi?


mbl.is Gylfi og Ragna hætta í stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!

Einmitt þarna er upphafið að því sem koma skal -> forsenda gagnkvæmrar virðingar, samskilnings og vináttu til framtíðar.

Sérlega ánægjuleg frétt.

 Með auknum gagnkvæmum skilningi og beinum samskiptum ungs fólks/ nýrra kynslóða er sannarlega langmesta vonin um að varanlegur friður komist á og "skref" sem þetta gleðiefni.

Til hamingju! :)   


mbl.is Arabíska skyldufag í grunnskólum Ísraels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært !

Áfram Holland :)
mbl.is Holland í 8-liða úrslit eftir sigur á Slóvakíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðhald Hugmyndahúss ...

Þarna virðist hafa orðið til mjög áhugaverður vettvangur gagnkvæmrar uppörvunar, sköpunar og uppfræðslu til athafnastarts og vel tekist til með að virkja mannflóruna.

Viðhöldum þessu og bjóðum gesti og gangandi velkomna með auknum kynningum verkefnisins :)

 


mbl.is Mistakafrelsið mikilvægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað fyrir Má en má!!?

Ef Már Guðmundson seðlabankastjóri getur ekki sætt sig við þær ráðstafanir Alþingis Íslendinga sem almenningi eru settar vegna efnahagshrunsins þá tel ég hann ekki réttan mann á réttum stað!

Sumir geta ekki verið "stikk-frí" á meðan aðrir þurfa að taka hressilega á ... hvað sem væntingum leið eða forsendum vinnusamninga fyrir lagasetninguna um hámarkslaun.

Sá Már óánægður þá einfaldlega leitar hann á önnur mið.

Margir ágætir einstaklingar geta tekið við af honum á þeim forsendum sem í boði eru.


mbl.is Laun seðlabankastjóra hækki um 400 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn tími til sparnaðar gjaldeyris!

Vonandi að bankarnir fari nú ekki inn í sama farið og venjulega og ýti undir bílainnflutning og óþarfa gjaldeyriseyðslu með barnalegri fjármálafyrirgreiðslu.

Bílainnflutningur eykur ekki innlenda verðmætasköpun né skiptir máli í atvinnusköpun þegar spara þarf gjaldeyrir. Í því sambandi er augljóslega betra og atvinnuskapandi að nota núverandi bílaflota lengur en við höfum gert undanfarin ár og gera við það sem aflaga fer á bílaverkstæðum hér heima.

Nýju bankarnir ættu að sýna "þarft nýtt andlit" .... fyrirhyggju og að leitast við að "stýra" landanum með skynsamlegi og ábyrgri fjármálafyrirgreiðslu sem stuðlar að því númer EITT - TVÖ og ÞRJÚ, að auðvelda okkur sem þjóð að byggja upp sterkan gjaldeyrisforða til framtíðar! 

Tölurnar í fréttagreininni hér eru góðs viti um breytta tíð .... og nú er lag til þess að viðhalda þessu en ábyrgð banka og fjármálastofnana er mikil og stefna þeirra skiptir miklu máli!    


mbl.is 11 milljarða afgangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið að Alistair Darling hrekkur í gírinn ...

og lætur hafa eftir sér ... að fréttum BBC í dag að dæma, að Bretar séu reiðubúnir að sýna sveigjanleika til lausnar Icesave-málinu.

Hann áttar sig m.a. á mikilvægi ásættanlegra samskipta Breta til langs tíma við þessa smáþjóð sem við Íslendingar erum og ekki síst til áframhaldandi framtíðarviðskipta þjóðanna - einkum öflunar Breta á ferskum fiski frá Íslandi, til áframhaldandi vinnslu á stórum svæðum í  Bretlandi og þ.m. framtíðar-atvinnuöryggis fjölda breskra fjölskyldna. Jafnvel þótt einhverjir sem sóttust eftir "hárri ávöxtun" og samþykktu þannig meðvitað að taka þar af leiðandi "meiri áhættu" samfara því, hafi tapað einhverjum peningum með íslensku útrásarvíkingunum þá er honum loks ljóst, að Íslendingar ætla ... að fara að því regluverki og virða þau lög sem um skil þeirra hluts á lágmarks innistæðutryggingum gilda innan efnahagssvæðis Evrópu.

Hann er loks farinn að meta stöðuna rétt og leyfi ég mér að þakka forseta vorum Ólafi Ragnari Grímssyni og synjun hans á undirskrift laganna (að kröfu tugþúsunda Íslendinga á undirskriftarlista) sem þjóðin síðan hafnaði blessunarlega í gær:

Besta dæmi Íslandssögunnar hvernig stjórnarskráin okkar (þó gömul sé) virkar eins og henni á einfaldan hátt var ætlað og hvernig eðlilega henni er beitt og réttilega farið með þau völd sem forseta landsins okkar eru ætluð - í okkar þágu og í nafni lýðræðisins.

Heill sé forseta vorum og þjóð!

Hollendingar gera sér vel grein fyrir, að þeir geta notið góðs af vinsamlegum samskiptun við Ísland og Íslendinga til langrar framtíðar eins og hingar til ... hvort sem við ákveðum að vera innan eða utan ESB því við eigum mikið af drykkjarvatni og vistvænni orku ... fyrir utan fiskinn. Þetta er öllum þjóðum innan ESB MJÖG VEL ljóst og eftir miklu að slægjast fyrir þá sem heild og til langrar framtíðar í efnahagslegum verðmætum talið, að viðhalda vinsamlegum samskiptum við örþjóðina Íslendinga.

Við höfum og auðvitað margvíslegra gagnkvæmra hagsmuna að gæta með þeim og staða okkar alls ekki veik!

Starf Evu Joly, skrif og orðræða um Ísland hafa svo sannarleg einnig komið réttum skilaboðum til umheimsins.

Áfram Ísland! :)    


mbl.is Bretar vilja sýna sveigjanleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfhverf þröngsýni - "lokuð" hugsun - dapurlegur vítahringur.

Ef þessi frétt er rétt höfð eftir þessum nefndu og annars eflaust ágætu núverandi áhrifamönnum, þá er ekki við miklu að búast til betri vegar og lýðræðinu til heilla frá þeim bæjum. Dapurlegt!

Menn verða að sætta sig niðurstöður þess stjónsskipulags sem undir merkjum lýðræðis liggja fyrir og haga áframhaldi vinnu sinnar í þágu þjóðarinnar með þær að leiðarljósi ... vilji þeir sinna slíku starfi yfirleitt.

Yfirlýsingar um þetta og þetta ef "ekki er gert eins og ég vil" eru auðvitað bara kjánalegar og veikja stöðu þeirra sem slíkar yfirlýsingar gefa ... því samningahæfi þeirra takmarkast auðvitað við það og lokar þá sjálfa þar með inni fyrirfram.

Íslenska þjóðin þar á allt öðru að halda í dag en lokaðri hugsun í vítahring ... sem nær ekki að opna!

Forseti Íslands hugsar "opið" og má "forsetaembættið" sem skíkt þakka honum þá vegsemd að það er loks eftir áratugi að þróast samfara breyttum tímum og í eðlilegu samræmi við rammann sem Stjórnarskráin makaði embættinu í upphafi.

Eva Joly hugsar opið og af víðsýni (sem okkur blessunarlega auðnast að njóta á þessum erfiðu tímum og er ómetanlegt s.s. nú síðast tillögur hennar til lausnar Icesave sem felast í því að kalla til erlendan "sáttasemjara" í deilunni) - byggðri á margþættri reynslu á alþjóðavísu eins og okkur öllum er kunnugt í dag.

Fólk sem talar fleiri tungumál og vinnur með þau dagsdaglega, verður hluti fjölmenningarheims og öðlast þess vegna sérstaka hæfni til m.a. "abstrakt hugsunar" og kemur auðveldar auga á "opnun" þröngra staða.  


mbl.is Gylfi: Stjórnin frá ef Icesave fellur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjánaleg viðbrögð Steingríms og Jóhönnu!

Yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands um ákvörðun forsetans að skjóta málinu til þjóðarinnar, ber vitni ótrúlegri þröngsýni ... þrjóskra óþekkra krakka, sem illa sætta sig við leikreglur lýðræðisins.

Að gefa tóninn með neikvæðum hætti, hvaða áhrif þetta kunna að hafa erlendis og m.a. á viðsemjendur okkar við samningaborðið, er auðvitað og vægast sagt stórkostlega vanhugsað af hálfu ríkisstjórnarinnar og sýnir kanski í hnotskurn hæfni þeirra í "samningamálunum" fyrir okkar hönd.

Þarna hefðu þeir bara átt að vísa í eðli stjórnskipulegs réttarfars á Íslandi og leikreglurnar væru lýðræðislegar.

 


mbl.is Endurreisnaráætlun í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband